9. Hátíðaruppgjör
Brestur - Podcast autorstwa Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís Ottesen
Kategorie:
Níundi þáttur Brests sem átti að fjalla um ADHD og ferðalög en tók mjög hratt og örugglega stefnu í allar aðrar áttir. Birna og Bryndís fara yfir jólin á Tenerife, spennuþrungna 37 klukkutíma sem það tók að komast á áfangastað, morgunstundirnar þar sem Birnu tekst að sigra Elvanse lystarleysi, ADHD játningar, nokkra ADHD sigra og margt fleira. Þáttastjórnendur biðjast forláts á enn kaótískari þætti en venjulega, en þetta er einfaldega það sem gerist þegar tvær konur með ADHD eru aðskildar í tvær vikur eftir að hafa talað saman oft á dag í nokkra mánuði. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur Brestur á Facebook