Heimavöllurinn: Varamaður úr KR keyptur fyrir metupphæð í Hruninu

Fotbolti.net - Podcast autorstwa Fotbolti.net

Kategorie:

Anna Björk Kristjánsdóttir var leggjalangur framherji í yngri flokkunum. Þegar hún var 18 ára gömul var hún ennþá varamaður í KR og hafði einungis spilað 11 leiki í efstu deild. Hún gekk í gegnum mikinn missi sumarið 2008 sem hafði mikil áhrif á hennar næstu skref. Máni Pétursson sannfærir hana um að koma í miðlungslið Stjörnunnar og hún endar á því að spila 168 leiki fyrir Stjörnuna, vera goðsögn í Garðabænum og vinna sex stóra titla. Anna hefur síðustu fjögur tímabil spilað sem atvinnukona í Svíþjóð og Hollandi og stefnir á að spila á Íslandi í sumar. Anna Björk fór yfir ferilinn með Huldu Mýrdal á Heimavellinum. Meðal efnis: - Uppvaxtarárin í Vesturbænum - Engin áhugi að verða afreks fimleikakona - Risa yngriflokka þjálfarar - Aðrir sem tóku fram úr í yngri flokkum - Olga Færseth hringir í U-16 þjálfarann - Að æfa með A-landsliðinu í KR - Pirringur yfir litlum spilatíma - Bróðurmissir og sorg - Af tilviljun sett í hafsent - Máni sagður bilaður að kaupa varamann úr KR - Fer á fund með pabba sínum hjá miðlungsliði Stjörnunnar - Fyrsti Íslandsmeistaratitillinn - Ætlaði ekki að raka á sér lappirnar ef hún yrði Íslandsmeistari - 17 ára Glódís úr HK/Víking stígur á tær - Doktor Big og Rússlandsferðirnar - Mikilvægur U-23 ára landsleikur - 18-0-0 tímabil Stjörnunnar og öll markmiðin - Blóðið rann hægt í litlu leikjunum - Tekin á fund fyrir að vera svart og hvítt með þriggja daga millibili - Grétar Rafn kveikti á hausnum - Át gras í fyrsta A-landsliðsverkefninu - Sjokkið að detta úr byrjunarliðinu korter fyrir EM - Afreksíþróttakona sem lærði á klukku í Svíþjóð - Sandra Sigurðardóttir og þolinmæðin í landsliðsferðunum - Vöðvasöfnun og góð ráð - Leiðtogahlutverið í Svíþjóð - Hungruð í fleiri landsleiki - Deildin flautuð af út í Hollandi þegar PSV var á toppnum - Ætlar að spila á Íslandi í sumar