Miðjan - Sammi hefur fengið 90 útlendinga til Ísafjarðar
Fotbolti.net - Podcast autorstwa Fotbolti.net
Kategorie:
Samúel Samúelsson hefur í fjölda ára verið í fararbroddi hjá Vestra á Ísafirði. Hann hefur fengið til félagsins stór nöfn eins og Guðjón Þórðarson, Bjarna Jóhannsson og Nigel Quashie auk um 90 erlendra leikmanna. Hann segir sögu sína í Miðjunni í dag. Meðal efnis: - Fiskur og fótbolti er líf mitt - Átti ekki merkilegan feril sem fótboltamaður - Fékk þrjú rauð spjöld sem stjórnarmaður - Nafn félagsins sem var kallað skástrikið en endaði á Vestra - Alfreð Elías kom liðinu upp en var sagt upp - Stressaður fyrir fyrsta fundinn með Gauja Þórðar - Með mjög mikla peninga árið 2011 - Slógu út Breiðablik og mættu KR í stærsta leik félagsins - Seldi besta leikmanninn eftir að hann kýldi bróður hans - Gaui Þórðar var ósáttur við söluna - Hann og Gaui tóku oft erfið samtöl - Guðjón hjálpaði og breytti félaginu til frambúðar - Brottrekstur Guðjóns Þórðarsonar - Freyr Alexandersson var að taka við þegar Jörundur Áki kom - Andri Rúnar hafði það of gott heima hjá mömmu sinni - Tími Nigel Quashie á Ísafirði og afhverju var hann á Íslandi - Fundaði með Bjarna Jó á Tenerife og réði hann ári síðar - Merkti húsið SSS skrifstofur og Bjarni bjó þar fyrsta árið - 90 útlendingar komið á hans tíma hjá félaginu - Þolir ekki Þór - Löggan ræsti hann út allar helgar til að stoppa partý hjá Þórði Inga og Alexander Veigari - Skammarleg aðstaða og æft í reiðhöll - Vestri ætlar upp í Pepsi-deild í sumar