Aukinn hnífaburður og flakkandi félagsmiðstöð

Spegillinn - Podcast autorstwa RÚV

Tíðindin af því að ung stúlka, sautján ára nemandi við Verslunarskóla Íslands hafa væri látin eftir að hafa verið stungin á Menningarnótt hafa vakið sterk viðbrögð og umræðu um ofbeldi og vopnaburð ungmenna. Barnaverndaryfirvöld hafa bent á að börn með þroska-, hegðunar- og geðvanda fái ekki viðeigandi stuðning og þjónustu. Þau eru líklegri en önnur börn til að vera bæði gerendur og þolendur í eineltis- og ofbeldismálum. Í áhættumati, unnið á þeim ungmennum sem innrituðust á Stuðla og höfðu beitt alvarlegu ofbeldi, kom í ljós að nær öll áttu lítið eða brotakennt samband við stofnanir eins og skóla, íþróttafélög og félagsmiðstöðvar. Funi Sigurðsson framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna - og fjölskyldustofu segir að lengi hafi verið varað vaxandi ofbeldi meðal barna og unglinga. Efling Flotans flakkandi félagsmiðstöðvar er meðal þess sem tíundað var í aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn ofbeldi meðal barna. Kári Sigurðsson er verkefnastjóri forvarna hjá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur og hefur yfirumsjón með Flotanum. Hann segir að draga verði skýrari mörk og gera börnum og ungmennun ljóst að hnífaburður hafi afleiðingar.